Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Teljari

Sumarblogg!Freyja Kjartansdóttir

27.maí
Gamla átti afmæli og varð 18ára WOOP WOOP! Var með litla veislu uppí skóla og svo smá party heima úti á pallinum. Ekkert smá kozy, komust nú samt ekkert alltof margir því ég bý fyrir utan Napoli en vorum alveg 15 í heildina plús frænkur og frændur:D




Kakan



HAHAHAHA alltof fyndið móment í gangi þarna

28.maí

Það er frekar mikið basic hjá mér og bestu vinkonum mínum hérna að fara á Kínverska veitingarstaðinn því ég þoli ekki hvað ítalir borða BARA ítalskan mat og aldrei mat frá öðrum þjóðum! Bestu vinkonur mínar eru hálf enskar svo þær eru nú frekar líkar mér og fá nú alveg ógéð á þessum ítalska mat. Skelltum okkur þangað og fórum svo heim til Isabellu & Grace (twins) og fórum út að labba með Stacey(hundur) og gistum svo hjá þeim :D Foreldrar þeirra voru á Spáni svo við vorum einar heima, við ákváðum að bíða svo eftir sólarupprási en auðvitað sofnuðu allir nema ég og Isabella ;) við vöktum svo Grace og Cecilia og skelltum okkur uppá þak. Sátum þar og horðum á sólarupprás! Sváfum svo í 5 eða 6 tíma úti á þakinu sem var bara frekar þægilegt :)



30.maí
Pabbi gamli varð 50 ára! Til hamingju með daginn gamli, sakna þín!

8.Júní
Síðasti skóladagurinn!! Ekkert smá sorglegt, og mér finnst svo skrítið að hugsa að ég muni aldrei sjá þessa kennara aftur, aldrei sjá krakkana í skólanum, aldrei labba um ganga Mario Pagano eða þurfa að klæðast skólabúningi! Eins mikið og ég þoldi þennan skóla ekki þá var þetta skólinn minn í 1 ár og ég sakna hans eiginlega, held ég muni nú samt sakna mest að fara í íþróttir þarna! Hataði það fyrst því það eina sem við gerðum var blak og ég án djóks er verst í heimi í blaki en mér var farið að finnast það skemmtilegt og að spila blak með bekknum mínum er óendanlega skemmtilegt!!! :D en held ég eigi nú ekkert eftir að sakna þess að þurfa að labba upp fokking 72 tröppur til að fara á klósettið og þurfa að mæta með minn eiginn klósettpappír :D þetta er eitthvað sem ég mun kunna að meta við MA eða bara ísland yfir höfuð! Góð klósettaðstæða allstaðar, haha.







9-12. júní - AFS CAMP

Fórum til Ischia(eyja) í svona AFS camp, vá þetta voru bestu 4 dagar lífs míns!
jújú gerðum alskonar leiðinlegt AFS stuff eins og alltaf en bara að hitta alla aftur, og bara að vera með þeim er svo alltof gaman! Vorum líka með sundlaug á hótelinu okkar, fórum á ströndina og tönuðum :D ég hlakka óendanlega mikið til að koma heim en guð hvað ég vill samt ekki fara héðan! Ég á eftir að sakna allra vina minna svo mikið en það versta er að ég mun sakna allra skiptinemana svo mikið, væri ekkert mál ef ég myndi sakna ítalskra vina minna því ég get alltaf heimsótt þau en að hugsa um það að ég muni kannski aldrei sjá þau aftur er alveg hræðilegt :‘‘(
Anyways þá vorum við auðvitað með Talentshow og Napoli hópurinn bjó til lag og gerði dans! Ekkert smá gaman en það skemmtilegasta voru æfingarnar! Guð þegar við vorum að reyna að ákveða dansinn við lagið.. held ég hafi ALDREI hlegið eins mikið á ævi minni!
Um nóttina var ég að tala við Tini og Lindsay, fór svo yfir í herbergið mitt og Marie hafði sofnað á rúmminu og auðvitað tók ég classic Freyju og gerði hrekk! Tók tannkrem og makaði því í andlitið á henni og svo blautann eyeliner en þá vaknaði hún. En eins og þið þekkið mig þá auðvitað tók ég myndband af þessu og held ég hafi horft á það yfir 20x og ég hlæ alltaf jafn mikið!!!!
elska lífið<3
En ég hágrét líka þarna, því þau voru ekkert smá vond við okkur! Þau létu okkur setjast í hring og svo settu þau sorglega tónlist á og svo stóð ein manneskja og las með svona rólegri rödd:
ýmindið ykkur að þið eruð að kveðja ítölsku fjölskylduna ykkar
þið eruð á flugvellinum, lítið til baka og sjáið fjölskylduna og vinina í síðasta sinn
þið eruð í flugvélinni og hugsið heim, hugsið að þið eruð að fara að hitta fjölskylduna og vinina í ykkar landi
þið eruð á flugvellinum og sjáið alla, þau eru öll komin með welcome home borða og það eru fagnaðarlæti
þið keyrið heim, og farið að hugsa til baka
þið hugsið að þið munuð kannski aldrei sjá skiptinema vini ykkar aftur
.... o.s.fv.
og ég hágrét! Mér leið eins og ég væri í flugvélinni og myndi aldrei sjá þessa vini mína aftur, og ég græt ALDREI en þarna bara gat ég ekki hamið mig.








f


16.júní
Í dag fór ég í Magic World (vatnsrennibrauta garður) með Lorena og fjölskyldunni hennar, leið eins og krakki. Var hlaupandi á milli allra rennibrautanna og næstum því að ýta litlum krökkum því mig langaði að vera á undan :P haha
þetta var géðveikur dagur og ég var svo sannarlega ekki að hata að horfa á the lifeguards þar sem ég er ekki frá því að það hlýtur að hafa verið regla þarna að þeir verða að vera heitir og guðdómlega fallegir til að fá vinnu! Ég sé aaaaaldrei sæta gaura hérna í napoli en hver einasti lífvörður var smoking hot!







Já ég er víst ekki mikill bloggari þar sem síðasta bloggið mitt var um áramótin og núna er kominn júlí, en meina betra en ekkert ;)

Gleðilegt sumar mínir litlu sætu HVÍTU íslendingar!
bara 24 dagar í að litli feiti tanaði álfurinn ykkar kemur heim!

JólafríFreyja Kjartansdóttir

Skíðaferðin
29.desember - 7/8.janúar

Miðvikudagurinn 29.desember
lögðum af stað í skíðaferðalagið kl.10 um kvöldið og keyrðum í 10 klukkutíma yfir nóttina.
Svaf í svona 2 tíma þar sem það er ekkert voðalega þægilegt að sofa í bíl..

Fimmtudagur inn 30.desember
Vorum komin eitthvað um 8 um morguninn og fengum okkur morgunmat. Fórum svo á hótelið, klæddum okkur og skelltum okkur á skíði. Hef sjaldan verið jafn stressuð eins og að fara í fyrsta sinn í skíði síðan ég var 9 ára eða eitthvað. En þetta var bara fínt, frekar erfitt þar sem ég kann ekki að skíða og gerði allt vittlaust en útsýnið var svo sannarlega í lagi !


Föstudagurinn 31.desember

Fyrir ykkur sem vitið kannski ekki þá hef ég verið meidd í vinstra hnéinu í sirka 3 ár og þegar ég vaknaði um morguninn gat ég ekki hreyft hnéið og það var svo bólgið að ég er ekki frá því að það var stærra en lærið á mér!
Svo ég skellti mér í sturtu sem var svo sannarlega skrautlegt þar sem ég þurfti hjálp við að komast inn í sturtuna.. en svo kom host-pabbi minn og skoðaði hnéið á mér(gott að hafa foreldra sem eru læknar) :D og ef ég skildi ensku útskýringuna hans rétt þá teygði ég á taug eða á vöðva.
Svo ég lenti á hækjum (Y)


Amma mín og afi vildi endilega fara niðrí bæ að skoða og ég fór með þeim, vá hvað ég vorkenni þeim sem þurfa að vera á hækjum! Það er fokking erfitt að labba á hækjum í 2 tíma í -10° plús það að markaðurinn sem við skoðuðum var í möl... og það er ekkert gaman að labba á hækjum í möl skal ég segja ykkur!
En jæja þetta var nú samt ekkert það hræðilegasta ;)

Gamlárskvöld
En já svo var gamlárskvöld, fengum 5 rétti og ég borðaði alla :O meirasegja pasta í grænni sósu sem minnti mig skuggelega mikið á ógéðslega cupcakes kremið okkar íseyar.

Andskoti góður eftiréttur hér á ferð

Svo má ekki gleyma að nefna það að ég hef sjaldan litið eins vel út og þetta kvöld :P Í elegant svörtum kjól, með teyjusokk um hnéið, í sokkum og á hækjum(Y)

Var soldið að hata það að vera á hækjum en maður naut nú samt smá athyglinnar frá gaurunum sem komu alveg með þvílíkann vorkunarsvip og spurði mig nú ekki hvort það væri allt í lagi með mann ;)
En já, voða rólegt kvöld bara MIÐAÐ VIÐ íslensk áramót. Talaði svo smá við hana Kolbrá mína áður en ég fór að sofa og sannfærði hana um eitt og annað sem endaði svo á því að rætast.. SKO ég hef alltaf rétt fyrir mér!!

Mánudagurinn 1.janúar - Föstudagurinn 7.janúar
Gerði voða lítið þessa vikuna, fórum reyndar á nýjann stað sem heitir Corvara og skíðasvæðið þar er sjúkt, þó svo að ég skíðaði ekki en útsýnið var ekki verra:D
Fékk PRICELESS fréttir frá góðu íslensku áramótardjammi, horfði á svona 12 kvikmyndir og 4 seríur af Friends og 2 af O.C. og drakk ískalda mjólk með mjólkurklökum í ;) haha
en hefði nú alveg verið til í að vera bara heima í Pozzuoli og hitta vini mína og njóta jólafrísins aðeins meira.. en jæja maður ræður víst ekki öllu
En jáá svona var „skíða" ferðin mín XD

Hér fáið þið svo að sjá nokkrar myndir úr ferðinni ;)

Angela og Sosio (náin frænka mín og eiginmaðurinn hennar) -gamlárskvöld

Federica(host-systir) og Raffaele (host-pabbi) -gamlárskvöld

Ludovica(host-systir) og Raffaele(host-pabbi) -gamlárskvöld

Systur ;) -seinasta kvöldið

Angela,Ludovica,Ég,Amma,Federica -seinasta kvöldið

Já við myndumst frábærlega..


Sátum framaní skóflunni á snjóbílnum á leiðinni niður -seinasta kvöldið

 


Betra seint en aldrei ;)Freyja Kjartansdóttir

Fimmtudagurinn 14.október
6 week camp
okei komum á „hótelið" okkar og hittum hina krakkana frá héraðinu okkar sem var mjög fínt.
Dagurinn byrjaði vel þar sem að hálftíma eftir að við komum á „hótelið" datt Marie um ferðatöskurnar og allir klöppuðu og hlógu !! þetta var einum of fyndið og ég mun aldrei hætta að gera grín að henni ;) og svo seinna um daginn datt hún aftur um ferðatösku inní herberginu og þá hlógum við ennþá meira !!

þetta var mjög fyndið!

Marie, ég og ferðataskan xD

Ég kynntist gaur frá Egyptalandi sem heitir Amr og hann spilar líka handbolta svo ég gat loksins tala um handbolta við einhvern þar sem eiginlega enginn á ítalíu veit hvað handbolti er!
Það var voða lítið að gera á hótelinu í frítímanum, en við bara spjölluðum og skoðuðum slúðurblöð þar sem við fundum m.a. fullt af myndum af géðveikt heitur gaurum ;) haha

Shiyan og kæró
Eins og vanalega fá strákar alltaf betri herbergin ! hvað er málið með það? Þetta var líka svona í Róm á arrival camp, þá fékk ég og Kristjana ömrulegt herbergi með lítilli sturtu og einum spegli á meðan baldur og óli fengu herbegi með stóru baði og marga spegla! Meina við erum stelpur við þurfum meira pláss!!
og það var þannig líka núna, við fengum ennþá minna herbergi og vorum 3 með þetta herbergi. Þegar ég var í sturtu og þurfti að teyja mig í sjampóið á botnunum á sturtuni þurfti ég að fara útúr sturtuni því ég gat ekki beygt mig niður því sturtan er svo lítil!
en annars var hótelið svosem alltílagi :)

Föstudagurinn 15.október
6 week camp
Löbbuðum niður í miðbæinn í bænum sem við vorum( sem ég man ekki hvað heitir) haha.
og þessi miðbær sökkaði! Okei það var mjög fallegt þarna en engar búðir og ekkert að gera, við löbbuðum bara á kaffihús og sumir fengu sér bjór og ég ákvað að fá mér ís sem ég sá eftir svona 5 mín seinna því auðvitað sullaði ég á mig !

Miðbærinn, ótrúlega fallegur !

Ég að þurrka bolinn eftir að hafa þvegið hann í vaskanum ;)

Fórum svo uppá hótel aftur og áttum að skrifa vandamál um fjölskylduna okkar og ég sagði að mér finndist stundum eins og þau séu ekkert voða glöð ef mér finnst ekki einhver matur góður, og svo þegar Angela(aðal AFS konan) átti að leysa vandamálin okkar þá ákvað hún að drulla yfir mig í staðinn fyrir framan alla... en meina æ só hún má bara vera grybba ef hún vill ég tók ekkert mark á henni

Svo áttum við öll að segja eitthvað frá landinu okkar og ég komst að því að það eru rafmagns hátæknileg klósett í Japan :P þú ýtir á takka og þá gusast vatn uppúr klósettinu og þrífur á þér rassgatið !! haha, einum of svalt!
en svo vorkenni ég kína krökkunum svo mikið sko !!
okei hérna eru nokkrir punktar sem þau sögðu okkur frá:

-Skólinn í kína er klikkaður! Okei þau búa flest öll í skólanum eins og bara vistin í MA nema það að þau læra ALLAN daginn, og ég meina bókstaflega ALLAN DAGINN ! sum þeirra læra frá 6 á morgnanna til 8 á kvöldin, og þá meina ég að þau læra hverja einustu sekúndu. Þau sögðu okkur að þau læra á meðan þau borða!
- Svo sagði Tu(nafnið hans) okkur að hann lærir oft alla nóttina og sefur ekkert og þeim er kennd sérstök aðferð til að halda sér vakandi... þau tala við sjálfan sig á einhvern sérstakan hátt
-Þau læra svona mikið vegna þess að það er svo mikil samkeppni, það búa svo margir í Kína að ef þú ert ekki með 10 í næstum því öllu er mjög erfitt að komast í háskóla.
-Eftir kennslu þrífa þau sjálf skólastofuna
-Þau fara í skólann klukkan sirka 8 og eru til sirka 4 eða 5, og svo fara þau aftur kl.7-9 til að læra meira!
- þau fara svo heim á föstudögum og gera lítið en að læra heimanám ... STUÐ!
-og já ég þekki stelpu sem borðar hunda!!
....En já þetta var bara fínn dagur, fórum svo öll uppá þakið og héldum party ;)

Laugardagurinn 16.október
Ég hef aldrei vitað almennilega hvernig japanir eru, en vá hvað þeir eru fyndnir !! eða að minnsta kosti Keita vinur minn :) hann var að segja okkur hvað hann gerði í skólanum og hans skóladagur er svona:
50 minutes sleep - 10 minutes brake - mangiare - 50 minutes sleep - 10 minutes brake - mangiare - 50 minutes sleep - 10 minutes brake - mangiare - 50 minutes sleep - 10 minutes brake - mangiare (50 mínútna tímar í skólanum - 10 mín pása - borða )
HAHAHA!! Okei þetta er kannski ekki fyndið að lesa, en að heyra hann segja þetta með krúttlegu lokuðu augun sín og svo er hann S mæltur og algjört krútt!! Best í heimi

Þriðjudagurinn 19.október
Fór í skólann, tók lestina á Italian corse og hitti Lorenu þar. Fórum og fengum okkur að borða :D Eftir ítölsku tímann fórum við að versla, ég, lorena, marie, balasz og mert.

Balasz, Marie, Lorena og Mert


Við að fara að versla

Vá við lenntum á svo ódýrum búðum sko! En höfðum bara klukkutíma til að versla svo komumst bara í 3 búðir XD en fann mér samt slatta. M.a géðveikar gallabuxur á 4500kr !! þær myndu kosta svona 20.000 á íslandi og 8 naglalökk á 1200kr, myndi kannski kaupa 1 eða 2 naglalökk á íslandi fyrir 1200 kr svo þetta var mjög ódýrt :)

þetta kostaði allt saman bara 9000 kr.

Fimmtudagurinn 21.október
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ MAMMA !!! <3 EÐA KANNSKI ÆTTI ÉG AÐ FARA AÐ KALLA ÞIG BARA ALLTAF GAMLA Í STAÐINN FYRIR MAMMA ;) hehe

Föstudagurinn 22. Október
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ KAREN BJÖRK GUNNARSDÓTTIR OG BÍLPRÓFIÐ ÆTLA ÉG RÉTT AÐ VONA SAUÐURINN ÞINN <3
Fór á Italian corse, ég og Elina hittum svo Massimiliano og Paolo og þeir skutluðu okkur til Giancarlo. Og VÁ hvað Paolo á géðveikan bíl !! hann á steingráan Austin mini með hvítu þaki og géðveikt nútímalegur og flottur að innan :D en já fórum svo til Giancarlo og þar var Lorenzo líka :D vorum svo bara eitthvað að chilla og fórum síðan til Vomero. Fengum okkur að borða og einn kaldann ;) hehe
En þetta var mjög gaman, spjölluðum mikið og þeir eru géðveikt fyndnir. Svo sagði ég Lorenzo frá því að þegar ég var á 6 week camp hafi ég komist að því að það er Napolist orð sem er svona: Rassgato = að hrækja horslummu
og ég dó úr hlátri að heyra alla segja rassgato, því eins og þið sjáið er það alveg eins og rassgat :) og þegar ég sagði lorenzo frá því ( btw þá var hann á íslandi í heilt ár í fyrra sem skiptinemi) þá hlógum við frekar mikið XD
Svo skutlaði Lorenzo okkur heim og ég var soldið stressuð því ég rata ekki heim til mín :$ haha
en svo þegar við keyrðum af stað sá ég alltaf svona kunnulega staði og við komumst að endanum heim, en hann sagðist aldrei ætla að skutla mér heim aftur :D haha

Aaaanyways orðið alltof langt! Er hætt núna og sorry hvað þetta kemur seint ;) haha

 

sakna allra;*

 

 

alltaf virðast þau verða lengri og lengri..Freyja Kjartansdóttir

Síðan er búin að vera biluð svo þetta er kannski smá gamalt blogg..

Laugardagur 2.okt:
Planið var solid þetta kvöld, party og læti en þá komst ég að því að það var Angelu nafnadagur og some shit .. þetta er svona eins og afmæli allir eiga svona dag nema það er bara nafnadagur svo allir sem heita Angela eiga nafnadag 2.október.. frekar spes en meina aldrei of margir dagar til að fagna sjálfum sér ;) Við fórum til Sorrento sem er ógéðslega falleg borg! Mæli með henni gott fólk :D
Fórum svo öll út að borða, hele familie.. vorum ca.15 og það var reyndar mjög nice, en vá hvað pizzan er ekki eins góð þarna og í Napoli, það er ekki lygi þegar fólk segir að Napoli pizza sé eitthvað sérstök :) Þegar við fórum svo útaf veitingarstaðnum sýndi Massimo mér ( bróðir host-pabba míns) kolkrabba sem þau hafi veitt með poka bara rétt áður en við komum úr sjónum hérna rétt fyrir neðan XD haha klikkuð fjölskylda sem ég er í <3 een já sá kolkrabbba og vá hvað þeir eru fyndnir, allir svona juggly eins og sulta og klístraðir og með klikkað mikið sogafl í örmunum haha
En já þetta var bara fínt, en hápunkturinn á deginum var held ég þegar ég kom heim og lítil sæt eðla var á vappinu þarna á veggnum mínum og við urðum bestu vinir, meirasegja skírði kvikindið Snorri ;) ég er ekki frá því að við munum eiga góðar stundir saman ;D

Sunnudagur 3.okt:
gerði ekkert (Y)

Mánudagur 4.okt:
Fór í skólann, ég er farin að falla betur inní bekkinn og líst bara mjög vel á þennan hóp ;) haha ég sagði bene, grazie þegar þýsku kennarinn minn spurði mig hvernig ég hefði það og allir urðu svona :O á svipinn og svo stóðu þau upp og klöppuðu... freeeekar okvó
Dagurinn í dag er merkilegur dagur í lífi allra því hin yndilsega Ísey Dísa Hávarsdóttir ( eða AC/DC eins og krakkarnir í bekknum kalla hana þökk sé mér ;) átti afmæli !! :D
og eins og alltaf dauðleiðist mér í skólanum svo ég föndraði eitt svona KLASSA afmæliskort handa rokkstjörnunni minni ;)

Þriðjudagur 5.okt:
Í dag í ensku sagði kennarinn alltaf shut up en ekki be quiet, hún sagði það frekar oft þegar húnn var æst og það var frekar óþægilegt því kennari á íslandi myndi ALDREI öskra yfir bekkinn SHUT UP !!
fannst það nú ekki mjög kennaralegt hjá gömlu, en ég fyrirgef henni þó því hún á svo ómyndarlegan son sem hún kynnti mig fyrir um daginn ;P
Fór ein á italian corse og það gekk bara frekar vel ;) þó svo að um stund hélt ég að ég væri týnd eeen þá sá ég klikkuðu töskubúðina og vissi að ég var á réttri leið :D hihi
Shiyan átti afmæli í dag og varð 16 ára, fórum til hennar og héldum surprise party eftir italian corse og það var bara mjög gaman ;)

Miðvikudagur 6.okt:
Í dag ákvað ég að vera súper sniðug og gera súkkulaðikökuna hennar mömmu og leifa þeim loksins að fá almennilega súkkulaðiköku :D eeen nei, auðvitað misheppnaðist kakan sem ég bara skil ekki þar sem að ég get gert þessa köku blindandi heima. Kenni ítölskum hráefnum alfarið um þetta!
enda reyndar var þetta soldið þeim að kenna, lyftiduftið virkaði ekki svo kakan lyftist ekkert og ofbakaðist pinku pons .. haha

og svo gerðu þau flórsykurinn sjálf með því að hræra einhvern svona sérstakan sykur saman en við hrærðum hann víst ekki nóg svo hann varð ekki að svona dufti eins og flórsykur svo kremið varð soldið skrítið... En meina ég prufa þetta bara aftur og þá verður hún alvöru.
í dag var gjuuðveikt veður, 26° stiga hiti og sterk sól svo ég skellti mér í sólbað og brann soldið :S en meina þetta breyttist bara í brúnku um leið ;) maður er nú ekki vanur að fara í sólbað í október, held ég gæti bara vanist þessu soldið vel :)


Föstudagur 8.okt
Skólinn í dag er búinn að vera mjöööög athyglisverður.. ég byrjaði á því að dotta í tíma og það gerðist soldið merkilegt þegar ég vaknaði.. á meðan ég var í mínu dotti mómenti fór mig að dagdreyma þegar Telma sendi mér myndirnar sem hún og Ísey tóku fyrir mig úr MA .. og já við skulum orða það þannig að þegar ég rankaði við mér þá vildi svo til að ég fór í hláturskast :/ og ég er ekki að tala um að ég hló mikið, heldur meira svona ég öskraði næstum úr hlátri og byrjaði að grenja!! Þetta var það al vandræðalegasta sem ég hef lent í !!! og ekki nóg með það heldur heldu allir að ég væri að gráta því ég væri svo leið og þá byrjuðu allir að hópast í kringum mig(VANDRÓ) og segja: are you alright Freyja !? Whats wrong ?? do you miss your friends and family ? og svo urðu allir voða kjánalegir því þau vissi ekkert hvað þau áttu að gera og ég hló svo mikið að ég gat ekki svarað og sagt þeim að ég væri að hlægja, því eins og þið kannski flest vitið að þegar ég hlæ þá heyrist ekkert í mér heldur hristist ég bara svo þau heyrðu ekkert að ég var að hlægja ! og þegar ég náði loksins að hætta að hlægja þurfti ég að útskýra fyrir þeim hvað var að og afhverju ég var að hlægja og það var freeeeekar vandró að segja þeim að ég hafi verið grenjandi úr hlátri því ég mundi eftir einhverjum myndum sem vinir mínir sendu mér í gær.. ILLA VANDRÆÐALEGT MÓMENT

Og þetta er ekki búið gott fólk, þetta var bara 2 tíminn minn, og svo þurfti ég auðvitað í síðasta tímanum að sofna aftur.. en það var samt í lagi nema fór svo inná bað að laga hárið mitt því það stóð allt útí loftið og þá gerðust töfrarnir! :) það eru engir speglar inná baðinu og þegar ég kom voru einhverjar stelpur að reykja þar (allir reykja inná baðherbergjunum) svo ég fór inná klósettið eða básinn eða what ever þetta heitir og ætlaði að laga á mér hárið en þá þurfti ég endilega að missa teyjuna mína.. ONÍ KLÓSETTIÐ TAKK FYRIR! Og það var ekki séns að ég ætlaði að ná í hana! Svooo ég þurfti að fara aftur inní bekkinn með enga teyju og lítandi út eins og gylitröll, en Lorenza var með aukateyju svo það var í lagi en ég þurfti nu samt að útskyra fyrir þeim hvað hafi komið fyrir blessuðu teyjuna mína og þegar ég sagði þeim það DÓU ALLIR ÚR HLÁTRI ! meirasegja kennarinn hló og hún er algjör grybba XD
svo ætli ég viti ekki núna hvernig það er að vera trúðurinn í bekknum, veit ekki hversu oft ég hef fengið allan bekkinn til að hlægja með/að mér! Alltaf gaman að vera hyrðfíflið í bekknum (Y) en já ég dýrka bekkinn minn þó svo að þau hafi gaman að því að hlægja að mér og mínum atvikum ;) haha

Eftir þennan frábæra skóladag hitti ég Lorenu og við vorum ca. 40 min að finna helvítis pizzustaðinn og svo þurftum við að bíða í klukkutíma eftir 1 pizzu !!!! held ég hef aldrei verið svona pirruð á ævi minni !! meina hversu lengi geturu verið að gera pizzu!? Við meirasegja pöntuðum bara eina saman og þurftum að bíða í fokking klukkutíma! Þvílíkt og annað eins enda vorum við við það að labba út, við vorum ekki að sætta okkur við klukkutíma bið á pizzu sem tók okkur 3 mínútur að borða!
svo við komum smá seint á ítölsku námskeiðið útaf þessu skemmtilega ævintýri okkar, en námskeiðið var þvílíkt leiðinleg! Það eru 2 kennarar, kona og kall og konan talar ensku en ekki kallinn og kallinn er með okkur Shiyan sem kunnum 0 í ítölsku og svo er konan með hina krakkan.. doesn‘t make any sence! Afhverju að láta einhvern sem kann ekki ensku kenna tvem stelpum á ítölsku ef þær kunna ekki ítölsku og svo hafa krakkarnir sem kunna ítölsku kennara sem kann ensku...
þessi kall er líka ekkert svo skemmtilegur og hann er SVO ANDFÚLL!! Ég held ég sé að verða pró í því að halda niðrí mér andanum ;D haha
Eftir ítölsku tímann hittum við lorenzo og giancarlo sem eru fyrrum skiptinemar, Lorenzo fór til íslands og Giancarlo til noregs svo ég gat talað smá við Lorenzo á íslensku ;) en hann er ekkert voða góður því hann lærði íslensku ekki vel því hún er svo erfið sagði hann en það er géðveikt krúttlegt að heyra hann reyna að tala íslensku og spurja mig svona af og til hvað þetta og hitt er á íslensku :D
aaanyways þá fórum við á kaffihús og fengum okkur bjór og spjölluðum, svo komu fleiri fyrrum skiptinemar og þetta var mjög gaman :D
Fórum síðan á Kebab ;D mmmMMmm, en það fékk mig til að sakna subway ! veit ekki hvað ég myndi gera fyrir einn subway núna :D En já þetta var mjög gaman og vonandi munum við öll hittast aftur :D

En orðið einum of langt, as always svo ég kveð að sinni
Peace out!

Soldið langt :SFreyja Kjartansdóttir

Fimmtudagurinn 23.september
Mjög fínn dagur bara ;) Rossella í bekknum mínum eldaði hádegismat fyrir mig, Isabellu, Grace og Susönnu og það var mjög gaman:D fórum í Wii og kjéllan átti high score í öllu nema í einhverjum heimskum fugla leik sem var ömurlegur því ég gat ekki látið ljóta fuglinn drullast til að fljúga.
HAHA
en svo vorum við eitthvað fyrir utan skólann að bíða eftir að host-pabbi minn myndi koma að sækja mig og þá hittum við Marcello sem er strákur í bekknum mínum og hann sagði: ciao Freyja, how are you ?
o g ég sagði: i‘m good thanks :) and you?
og þá varð hann eitthvað kjánalegur og sagði eitthvað á ítölsku við Isabellu og fór svo inní búðina sem við stóðum við og ég spurðu Isabellu bara: what was that ? :P
og hún sagði að hann hafi ekki skilið mig af því að ég sagði ekki: fine thanks
því þeim er kennt það og ALLIR segja fine thanks við þessari spurningu og honum brá svo mikið að hann fór í kerfi og fór bara inní búðina :P !!! ég dó úr hlátri eins og einhver hálviti og stelpurnar störðu á mig og bara: what‘s so funny ? og ég eitthvað: just that he didn‘t understand be just because i didn‘t speak english as you are tought in the books :D
en já fór svo bara heim og man ekki, held ég hafi bara farið í tölvuna eða eitthvað

Föstudagurinn 24.settembre
Fór ekki í skólann því ég fór á einhvern fund með AFS, við fórum í einhvern skóla og þurftum að standa uppá sviði fyrir framan FULLT AF FÓLKI OG FULLT AF KRÖKKUM Á OKKAR ALDRI !! það var hræðilegt, og það sat bara og horfði á okkur á meðan einhver kona var að tala á ítölsku, svo fórum við eitt og eitt svona aðeins framan og fengum micraphone og áttum að segja: Hæ ég heiti Freyja, ég er frá íslandi og velkomin til Napoli en fengum að segja þetta á okkar tungumáli svo það var fínt. Það var svo fyndið hvað allir urðu hissa að heyra t.d. íslensku,japönsku,kínversku og tyrknesku :D haha
En svo þurftum við að vera þarna í 2 tíma í viðbót og áttum að sitja og hlusta á fólk tala ítölsku en við nenntum því ekki svo ég og Lorena fórum eitthvert niður með einhverjum gaurum úr skólanum og vorum eitthvað að spjalla við þá og þegar ég sagði þeim í hvaða skóla ég var urðu þeir allir geggjað glaðir og öskurðu eitthvað og sögðu svo : HEY WE KNOW THAT SCHOOL !
og ég bara: Yes okei, great (Y) haha, eins og það sé bara rosalegt að þeir viti hver skólinn minn er :) haha, eins og ég eigi bara að vera í einhverjum skóla útí rassgati sem enginn veit hver er bara því ég er skiptinemi :D haha
en svo fórum við að éta pizzu, fórum svo í ítölsku próf til að gá í hvaða level í ítölsku við erum og ég er náttúrulega í svona level 0 eða eitthvað XD, fengum 5 bls. hefti með alskonar verkefnum, ég gæti ekki einusinni gert þetta á dönsku og er buin að læra það í 5 ár! Við áttum að gera alskonar grammar, setja orð inní setningu og beygja þau eftir því hvernig setningnin er og ég skildi ekki einusinni orðin sjálf! Svo las konan texta og við áttum að svara true/false og svo skrifa bréf og ég bara WTF !! og ég svaraði svona 5 spurningum (Y) en svo voru reyndar alveg soldið mörg þarna sem voru buin að vera að læra itölsku í skóla áður svo þessvegna kunnu þau svona mikið og þá leið mér aðeins betur að ég kunni ekkert miðað við þau :D


Napoli hópurinn :)

Seinna um kvöldið fór ég svo með Ludovicu og Nicolette út að borða því bróðir Nicolettu er að fara í university til rome og þau voru að halda svona goodbye dinner og þar voru fullt af vinum þeirra, vorum kannski svona 15 held ég :)
En þetta var svo fokking géðveikt kvöld sko !! okei Ludovica sagði mér að ég væri eitthvað að fara út að borða og ég eitthvað okei.. svo mættum við á svæðið og það var tónlist í botni og ég meina Í BOTNI! Það var eins og að vera inní sjallanum og standa uppvið hátalarann, án alls djóks!
Svo við þurfum að öskra á hvort annað þegar við vorum að tala saman XD svo fengum við forréttinn sem var btw ógéðslega góður! Og þá byrjaði fulla fólkið sem var svona 40+ ára, að dansa og áður en ég vissi af fór það að dansa uppá borðum !! það var fólk þarna frá svona 14 ára - 45 ára aldri og allir eitthvað að dansa uppá borðum!! Þetta var priceless
ég reyndi að halda inní mér hlátrinum en það gat ég ekki þegar tveir strákar sem voru með okkur fóru að dansa uppá borðum með 40 ára konum sem voru í þröngum buxum og korselettum :D einum of fyndið !!
en vinir ludovicu eru æðislegir! Þau eru ekkert feimin og tala við mig fullt og fíflast með mér :D og já svo fórum við að dansa uppá borðum :D !!! POWER LOL (tileinkað þér snorri minn) ;*
okei þau drógu mig eitthvað uppá borð og við byrjuðum að dansa, svo kom eitthvað lag(sem ég man ekki hvað heitir en við þekkjum það) og það kunnu allir á veitingarstaðnum dansinn við þetta lag og þau kenndu mér hann :D þetta var eins og í svona söngleik ;) en allavegana svo vorum við eitthvað að dansa UPPÁ BORÐUM á VEITINGASTAÐ og þá stoppaði ég og svona leit aðeins og kringum mig og byrjaði að grenja úr hlátri ! ég hló og hló og hló og þurfti að setjast niður, því að sjá okkur dansa uppá borðum á veitingarstað er svo ALLTOF FYNDIÐ !! fór inná bað og ég var öll orðin svört því ég grét svo mikið :D great(Y) en já þetta var svo alltof gaman sko !
Ísey þegar ég kem til baka kenni ég þér dansinn og við förum uppá borðin í sjallanum og dönsum þar! Dansgólf hvað segi ég nú bara!? Haha
En svo fórum við út og þá byrjaði Tony að kenna mér að blóta á ítölsku og lét mig kalla á Mario og segja honum að drulla sér í burtu því hann er þroskaheftur og eitthvað XD og ég var eins og hálviti en þetta var géðveikt fyndið :D hann lét mig standa útskeifa með mikið bil á milli lappanna og með hendina uppí loftið og öskra eitthvað á ítölsku:D þetta var vandræðalegasta en mest skemmtilegasta og flippaðasta móment í heimi ;) og svo var mér held ég kennt svona 25x yfir kvöldið að segja : gemmér five , en það er VIRKILEGA ERFITT, ég bara gat ekki munað það en þegar ég náði svo að segja það urðu allir svo glaðir og byrjuðu að gefa mér five og bara BRAVA BRAVA !! haha :)
en okei orðið langt, en þetta kvöld var géðveikt !! svo var maður ekkert að hata það að einn gaurinn þarna var eiginlega einum of sætur og var ekkert að hata kjééélluna ;) hehe



Laugardagurinn 25.settembre
Svaf mjög lítið því ég var að tala aaðeins of lengi við ísey og fleiri á föstudagsnóttina :$ hihi
eitthvað að væla í greiiunum ;) elska ykkur ;*
en já svo ég fór ekki að sofa fyrr en svona 4 held ég og svo vaknaði ég kl.9 því við fórum að versla :D !!
en það var rigning svo við fórum ekki í miðbæinn, svo ég, Ludovica, Federica og host mamma mín fórum í nokkrar stakar búðir bara því Ludo var að leita sér að kjól fyrir 18 ára afmælið hjá kærastanum sínum og 18 ára afmæli er voða stórt hérna svo hún þurfi að kaupa nýjann kjól :) en ég náði að kaupa mér peysu, skyrtu og svo eitthvað svona sítt bola dæmi við leggings en er mjög ánægð með þetta en vá hvað allt er dýrt samt :/ En við ætlum aftur í vikunni og þá niðrí miðbæ þar sem eru mörg þúsundir búða :) gotta love Naples :D


en já svo bauð Ludo mér out clubbing með henni, kærastanum hennar og Nicolette um kvöldið, en þetta kvöld var ömurlegt! Kærastinn hennar sagði okkur að mæta kl.10 sem ég veit ekki afhverju hann lét okkur gera því klúbburinn opnaði ekki fyrr en kl.11 og við biðum í klukkutíma úti og svo sagði hann okkur ekki að við þyrftum að hafa skilríki svo Ludo komst ekki inn og hún reyndi í 45 mín og á meðan stóð ég bara eitthvað hjá einhverju fólki og þau töluðu voða lítið við mig og Ludo var svo pirruð að hún talaði lítið við mig svo mér leið soldið kjánalega.. en svo ákváðum við að labba á annan stað þar sem Federica var og ég hélt að þetta væri svona smá spöl en nei við löbbuðum í svona 20 mín á hælaskóm á géðveikt holóttum og lélegum götum og alltaf í halla svo það sökkaði frekar mikið, og þá byrjaði auðvitað að rigna !! og svo þegar við komum þangað ákváðu þær alltíeinu að fara aftur á staðinn þar sem við vorum og við löbbuðum AFTUR ALLA LEIÐ TIL BAKA sem sökkaði ennþá meira og þegar við komum hafði löggan komið og hent öllum út svo við hringum í Pabba okkar og hann var ennþá í bíó svo við biðum í svona korter og löbbuðum svo eitthvað og hann kom og sótti okkur. Svo já þetta var kannski ekki besta kvöldið en þær sögðu samt að þetta væri aldrei svona, Fede sagði að löggan hefur aldrei komið áður og það er aldrei sem þær komast ekki inn svo ætli ég sé ekki bara Bad Luck eða eitthvað XD en fórum svo bara heim og að sofa :)

Sunnudagurinn 26.settembre
Svaf til hálf3 sem var géðveikt því ég er alltaf géðveikt þreytt hérna því hausinn á mér er alltaf á fullu, og ég varbara í tölvunni og eitthvað ;) just chillin, en ég get ekki hætt að hugsa um hvað mig langar í íslenskt nammi og pakkinn frá mömmu kemur ekki fyrr en á miðvikudaginn eða fimmtudaginn !! hef ekki svona mikla þolinmæði !!



Sorry með fáar myndir, er bara ekki mikið með myndavélina á mér
SAKNA ALLRA SVO ÓENDANLEGA MIKIÐ :( en hlakka bara til að koma heim, tönuð og feit ;* hehe

Blogg 2Freyja Kjartansdóttir

Fyrstu skóladagarnir eru búnir að vera fínir :D krakkarnir tala mikið við mig, eða það er að segja þau sem kunna ensku XD en það eru tvær stelpur sem kunna ensku fullkomlega því þær bjuggu í englandi og ég sit hjá annarri þeirra sem heitir Isabella og það er mjög fínt :)
Isabella er búin að segja mér allt gossip um bekkinn :D og þetta er algjör drama bekkur, alltaf einhver pör í gangi og þessi ástfanginn af hinum og þessum í bekknum en aldrei gengur neitt upp og eitthvað voðalegt :D haha
En mér líst bara vel á bekkinn minn, stelpurnar eru mjög fínar og svo eins og í öllum bekkjum er ein mega skinka í bekknum og svo einn heitur fótboltagaur ;) maður er ekki að hata það.. haha
En mér leiðist soldið í skólanum því ég sit bara og teikna í bókina mína :D haha
reyni að hlusta eitthvað en maður nennir ekki að hlusta í 4-5 klukkutíma á eitthvað tunumál sem maður skilur ekki neitt. Svo ég reyni að fara yfir glósur sem ég er búin að gera og svo lét Raffaele mig fá einhverja enska bók sem er mjög fín og ég er að byrja að lesa hana :D

á laugardaginn fór á á AFS fund sem var fínt, hitti skiptinemana aftur sem búa í sama héraði og ég og allt gengur vel hjá okkur öllum ;) Fór svo út að borða með familíunni og fórum svo í kirju því 19.september er eitthvað sérstakur dagur því einhver var hálshöggvinn og eitthvað og ef blóðið hans breytist ekki í vökva þá mun eitthvað hræðilegt gerast. Og það hefur gerst einusinni sem blóðið varð ekki að vökna og þá varð einn stærsti jarðskjálfti sem komið hefur á Ítalíu, svo ég trúi þessu alveg semí þó svo að ég sé ekkert voðalega trúuð, en það er soldið spúkí að það hafi gerst akkúrat þá :) haha
en já löbbuðum svo frá kirkjunni og þar var RISASTÓR markaður með nammi! Og bara nammi og það var SVO MIKIÐ eeen ég stóðst freistingunnar og keypti mér ekki þó svo að Raffaele bauðst til að gefa mér ;) maður er að reyna að vera hollur hérna svo maður fitni nú ekki OF mikið ;) hihi

á AFS fundinum, hún átti afmæli ;)

Markaðurinn :) hann sést ekki allur samt


Ég fór á róðrar æfingu með ludovicu í dag ( að róa bát semsagt ), já hún er að æfa það :D haha
og það var ágætt, ég horfði nú samt bara á, var ekkert voða spennt að fara eitthvað að róa einhverjum báti, en er að spá í að prufa sund með Federicu og host-mömmu minni þegar þær byrja í því ;D
Fór í afmæli til afa míns í dag sem var held ég 90 ára í dag og hann er mjög ruglaður, orðinn eldgamall og veit ekki ennþá að Federica sé komin heim frá Finnlandi þó svo að hann sé búinn að sjá hana 6x síðan hún koom heim, haha :)
Komum svo heim og ég ákvað að vera dugleg eina ferðina enn og fara í ræktina.. sem BTW er í húsinu mínu :D hihi
en já ég fór semsagt bara á neðrihæðina og fór á hlaupabrettið og í seinustu skipti hefur það bara verið fínt en í dag ákvað sæta hnéið mitt að taka upp meiðslin EINA FERÐINA ENN!! Og ég var að drepast eftir 10 mínútur en náði að hlaupa í 10 mínútur í viðbót, en þá gaf hnéið sig algjörlega :/
en meina.. það er nú ekkert nýtt fyrir mér að ég sé að drepast í hnéinu;) fer bara á morgun aftur og reyni að bæta metið :D haah þetta háa met mitt, alveg heilar 20 mín! Haha
En við ætlum á bátinn á morgun og ég hlakka géðveikt til, ætla að tana feitt og stinga mér í sjóinn og bara eitthvað svona basic ;D haha
Eeeen já, það er voða lítið í gangi núna þessa dagana svo ég hef ekki bloggað mikið, en náði nú að setja smá slettu í þetta sinn ;)
SAKNA ALLRA GÉÐVEIKT MIKIÐ!!

en allir vilja endilega fá myndir svo ég setti nokkrara með m.a. þessi sem er hérna fyrir neðan ;) haha
svona lít ég út nákvæmlega núna,... jebb ég tók mynd af sjálfri mér rétt áður en ég fór að sofa og smellti henni svo inní bloggið ;)
það er alltaf gaman að hafa mynd með öllu sem er að gerast, m.a. því að ég fer að sofa kl. 11 hérna ;) hehe

Buona notte ;*

fyrstu dagarnirFreyja Kjartansdóttir

Föstudagur 10.september
Vaknaði kl.4 og var komin útá flugvöll kl.6, ég check-aði mig inn og kvaddi mömmu og pabba. Ég var eiginlega hvorki spennt né kvíðin :/ en svo lentum við í Kaupmannahöfn og þurftum að bíða þar soldna stund, fórum á einhvern ítlaskan pizzu stað í fríhöfninni sem sökkaði því ég fékk pizzuna mína þegar allir voru búnir að borða og þau gáfu mér vittlausa pizzu og einhvern eftirrétt sem ég pantaði ekki, og þá afsökuðu þau sig eitthvað og komu svo 10 mínútum seinna með nýja pizzu og hún var líka vittlaus en ég nennti ekki að bíða lengur svo ég át hana bara. Og þessi bið var ekki þess virði því þetta var ekkert svo góð pizza!
Lentum svo í Róm sem var géðveikt! Komum úr flugvélinni og það var géðveikt heitt, fórum á hótelið og ég var með Kristjönu í herbergi sem var frekar lítið en allt í lagi samt, nema að klósettið var INNÍ sturtunni og sturtan var svo lítil að ég gat ekki hreyft mig..

klósettið með sturtunni inní
En síðan fórum við bara og töluðum við eitthvað random fólk sem var reyndar gaman :) kölluðum í einhvern gaur á svölunum sem bauð okkur í party í herbergið sitt því hann var svo einmanna greiið, en þegar við komum og bönkuðum á einhverjum dyrum eins og algjörir hálvitar kom þessi gaur til dyra og báðir herbergisfélagar hans voru sofandi og vöknuðu eitthvað alltíeinu með fullt herbergi af íslendingum ;) en þetta var bara gaman :)
En já svo vorum við klukkutíma og korteri of lengi vakandi og fólkið varð alveg brjálað :S


Laugardagur 11.september

Vaknaði hálf 8, fór í morgunmat sem var ömurlegur btw! Fengum volga mjólk með kornflexinu, ógéðslega þurrt brauð og eitthvað vont hvílaukssmjör or some shit en svo voru reyndar ágætir ávextir.
Svo var okkur skipt í hópa og ég og fullt af krökkum fórum í einhvern skóla sem btw var með tvær kirkjur inní skólanum, eeen allavegana þá voru þar til kl.20:00 um kvöldið sem var langdregið og ekkert voðalega gaman því við gerðum ekki annað en að tala um það sama og við gerðum á námskeiðunum á íslandi nema þarna vorum við inní lítilli sjóðandi heitri skólastofu og með ömurlegt nesti. Fengum einhvern poka sem átti að duga fram að kvöldmat og í honum voru 4 ávextir( btw þá borða ég núna Ferskjur !!! woop woop :) ) og 3 samlokur sem voru í svo seigu brauði að ég þurfti að bíta 3x á sama stað og rífa það í sundur, og á þeim var salami á einni, bara ostur á einni og egg á þriðju.. svo ég neyddi ofaní mig eina samloku og svo borðaði ég ávextina og svo fengum við líka 1,5 l vatn .
Aaaanyways þá var þetta ekkert voðalega gaman nema þegar við fórum í einhverja leiki, og ég lenti í svo illa vandræðalegu !!!
okei vorum í einhverjum svona leik þar sem við vorum c.a. 200 krakkar eða eitthvað í hring og vorum í svona röð á eftir hvort öðru og áttum að vera viiiirkilega nálægt hvort öðru og ég var á milli einhverja stráka, og svo áttum við að dansa og dansinn var þannig að það var eins og við værum að taka manneskjuna fyrir framan í rassinn ( afsakið ljóta lýsingu þið fullorðna fólk sem eruð að lesa, en þetta var þannig og það var það brandarinn í þessu) og það var frekar fyndið þanga til við áttum alltaf að fara nær og nær og mér var svogsem sama því það gerðu þetta allir en gaurinn fyrir aftan mig þorði ekki að fara nær mér og aðal gaurinn labbaði að okkur og sagði : look look everybody, you can see the highway between these two!
og allir fóru eitthvað að flissa því gaurinn þorði ekki að fara nær mér og hann varð svo vandræðalegur og þá varð ég vandræðaleg og allir voru eh að stara á okkur.. :S
en æ meina þetta var fyndið eftirá :)

vandró gaurinn
Jææja.. síðan fórum við uppá hótel aftur og fengum að heyra frá krökkunum sem voru þar í þessum fyrirlestrum að þau fengu glænýtt pasta og kjúkling í hádegismat og þá varð dagurinn ennþá verri!
Síðan fórum við bara í kvöldmat og eitthvað og töluðum við fullt af einhverju fólki frá öðrum löndum og eitthvað svoleiðis :D og já við sáum kiwi tré :)
Kvöddum svo Magneu og Eyrúnu því þær fóru kl.6 morguninn eftir

Kiwi tréið


Við að kveðja Magneu og Eyrúnu

Sunnudagur 12.september
Vöknuðum og þurftum að skila herberginu síðan kl.8:30, fórum þá niður og vorum bara að bíða eftir að klukkan yrði 12.
Ég kvaddi svo Jenný, Baldur, Sæunni, Katrín Þöll, Örnu og Kristjönu og ég og Óli fórum út að bíða með krökkunum sem voru að fara til Napoli og bæina þar í kring.
Fórum á lestarstöðina og þurftum að bíða þar í 2 klukkutíma og ég lagst bara á gólfið og var næstum búin að sofna í sæta gula AFS bolnum, en ákvað að gera það ekki á einhverri lestarstöð útí róm eins og einhver kjáni :) ooog ég sá fyrsta ítalska rónann minn !!


róni sæti

Fórum svo uppí lest sem tók frekar langann tíma því við vorum svo mörg og öll með töskur, sátumst svo niður í lestina og loftræstingin var biluð og allir byrjuðu að svitna því það var svona 30° hiti þarna inni en eftir svona hálftíma vorum við færð annarstaðar þar sem loftræstingin var í lagi, sem betur fer segi ég því ég gat varla andað lengur það var svo heitt og ég hélt fyrir nefið eins og einhver hálviti útaf helvítis svitalyktinni! Þetta var ekkert eðlilegt!!
Lentum í Napoli og þar voru fjölskyldurnar að bíða eftir okkur og ég hitti þá Ceccarino fjölskylduna í fyrsta sinn og vá þau eru svo æðisleg!
Hitti síðan fyrrum skiptinema sem býr hérna á Ítalíu og hann fór sem skiptinemi til íslands í fyrra og ég var bara eitthvað að spjalla við hann á íslensku :D sem var géðveikt! Og síðan sagði hann mér að ég er víst með hann á facebook, og ég bara: ó yeees that‘s right :D( en ég hugsaði: whaaat!? Já ókeeeei... Vandró man ekkert eftir þér ) haha
En hann var géðveikt nice, og bara nokkuð sætur ;) og reyndar voru eiginlega allir fyrrum skiptinemarnir sem komu þarna til að sjá okkur sætir :D ég hafði víst rangt fyrir mér, það eru til margir sætir ítalir :P
aaanyways þá hitti ég svo trúnaðarmanninn minn og síðan fórum við heim :)
Federica(systir mín) talaði géðveikt mikið við mig sem var mjög gott en ég einhvernveginn vissi ekkert um hvað ég gat talað svo hún rauf þögnina soldið oft :D en krúttið hún Ludovica var géðveikt feimin :D
Fórum svo bara heim í ógéðslega fullkomna húsið mitt !! og það fyndnasta er að það er gaur sem fylgist með hverfinu mínu og tekur póstinn frá póstkallinum og lætur alla fá póstinn, og það er hlið og alles inní hverfið okkar og engum er hleypt inn nema að hann viti að hann megi koma og eitthvað :D ógéðslega fyndið, eins og það séu bara nauðgarar og ræningar á hverju horni eða eitthvað :D
En já húsið mitt er svo fullkomið, það er á þrem hæðum en ekkert voðalega breitt samt og það er géðveikt ítalskt og flott :D
okei verðið að afsaka hvað þetta er langt :) haha, er víst ekkert alltof góður bloggari :D
en já það eru líka svona 5 baðherbergi hérna eða eitthvað, það er gufa og allir veggir eru fullir af einhverjum myndum og einhverju dótaríi :D mjööög öðruvísi en íslensku húsin en bara svoo yndilega flott og ég held ég sé virkilega ástfangin af húsinu okkar, gæti ekki verið betra :D og svo þegar maður labbar niðrí kjallara þar sem gufan og eldhúsið er labbaru niður svona stiga eins og þú sért að labba niður í svona pizzustað þar sem pizzurnar eru eldaðar :D eða þannig leið mér allavegana :D haha
en já fórum svo til Napoli að borða hina frægu Napoli margarita og þegar ég sá pizzuna varð ég soldið smeik... það var lítill ostur og miiiiikil sósa og ég vill alls ekki mikla sósu en eigum við eitthvað að ræða það hvað þessi sósa var góð! Ég skóf hana næstum því af disknum :æ og vááá hvað þetta er góð pizza hún er eitthvað magical ;)
okei vá þetta er orðið langt, allavegana fórum svo og fengum okkur ís og það voru svona 15 bragðtegundir af kúluísnum og ég fékk mér Kinder og Nutella ( sem er svona brúnt hnetusmjör eins og við köllum súkkulaðið sem við setjum á brauðið á íslandi )
sem var klikkað gott :D
en já fórum svo heim og fórum yfir allar reglurnar um hvernig ég á að vera í húsinu og fl. Og ég MÁ fara út með blautt hárið annað en AFS sagði, og ég má fara eins oft og eins lengi í sturtu og ég vil, ég má nota allt á heimilinu þeirra og bara ganga í ískápinn og þannig og vera eins mikið á netinu og ég vil svo lengi sem ég er ekki 24/7 :)
Ég má líka vera á tánum inni annað en AFS sagði og þau fara úr skónum eins og við á íslandi annað en AFS sagði að við þyrftum að fara að venju okkur á að gera ekki og þau drekka mjólkina kalda en ekki volga :) svo þau eru frekar lík bara íslenskri fjölskyldu
En já svo bara fóru allir að sofa eitthvað um 11 og ég bara sofnaði strax :D ekki eitthvað sem ég geri á íslandi að fara svona snemma að sofa :D
og aftur; sorry hvað þetta er langt

Mánudagur 13.september

Goivonna spurði mig kvöldinu áður hvort hún ætti að vekja mig kl.8 og ég bara:já ekkert mál :) og ég var nú hvorteðer eiginlega vöknuð því það er svo heitt að ég sef ekkert lengi og svo fór ég nú líka að sofa kl.11 :) Fékk mér morgunmat og þau rista brauðið eins og við gerum grill samloku ;) haha
þau setja brauðið saman í samloku inní grillið og rista það þannig og svo setjum við áleggið á eftirá :D haha en það er mjög gott og mjólkin er betri en ég hélt, svo ég gat drukkuð hana bara eintóma :D kjéllan er að hætta að vera matvönd :D !!!
En svo fór Giovonna í vinnuna, ég Raffaele og Ludovica fórum til Napoli í skólann minn sem er svosem ágætur en soldið minna snyrtilegur en MA :D en alltílagi samt, en ég er í tungumála skóla semsagt og er í skólanum frá 8-12:30 frá mánudegi til laugardags. En kennarinn sem sér um AFS krakkana talar ekki ensku:S en hún talar þýsku svo ætli ég geti ekki sagt eitt eða tvö orð við hana :D haha, en hún sagði mér að það eru 2 stelpur í bekknum mínum sem tala ensku svo ég er mjög glöð með það :D
Fórum svo með Ludo og vinkonu hennar í eitthvað fisical test því þær ætla að æfa að róa báti.. haha veit soldið skrítið eeen meina okei.. haha
en já og við löbbuðum framhjá ræktinni sem er þar og allir gaurarnir voru berir að ofan og eitthvað að lyfta og þarna kom loksins móment sem ég virkilega þurfti að hemja mig ;) haha
og ámorgun fer hún í svona fisical test þar sem hún á að fara í ræktina og sæææll vona að hún verði í sömu rækt og gaurarnir ;: hihi
Komum heim svo í hádeginu sem er btw kl.13:30-14:00 svo ég var að deyja úr hungri því ég var ekki búin að borða síðan kl.8 um morguninn, en við fengum spínat rétt sem var eins og lasagna nema í staðinn fyrir hakk var einhver spínat leðja og ÉG BORÐAÐI ÞETTA!! Og þetta var ekkert hræðilegt, en gat ekki borðað voðalega mikið af þessu en alveg vel stórann skammt.
Fór svo í sólbað með Fede og vá hvað það er géðveikt!!! Ég setti á mig 15 í sólavörn en ég brann samt og ég brenn aaaldrei :D enda var sólin klikkað sterk og það var 32° hiti :D
Fór svo aftur til Napoli og hitti foreldra Raffaele, systur hans, bróðir hans og son hans :) og man bara að afinn og litli strákurinn heita báðir Federico :)
Það er ótrúlegt hvað ítalskar fjölskyldur gera margt saman, til dæmis þá fór litil Federico í eitthvað ensku test til að tjékka hvað hann er góður í ensku því hann ætlar að fara á svona námskeið og þau voru að gá í hvaða level hann er í og þá mættum við öll og pabbi hans bara for support :) og við vorum bara eitthvað að bíða á meðan hann var í þessu prófi og fórum svo bara xD
En já svo fórum við í bátinn að ná í eitthvað dóterí og vá hann er niiiice !
Raffaele sagði mér að ég er að fara í eitthvað AFS party á sunnudaginn svo við ætlum að fara á laugardaginn eftir skóla á bátinn og útí einhverja ey og skoða og eitthvað :D planið var að gista í bátnum en útaf þessu AFS partyi þá gerum við það held ég ekki.
En svo fórum við bara heim og ég fór út á pallinn eða terrance er þetta held ég kallað og sat þar í svona géðveikt kozy ástarrólu og byrjaði að blogga,

ástarrólan
svo var kallað á mig í mat og við fengum eitthvað kjöt í sósu sem var reyndar frekar þurrt en alltílagi samt og enn eitt svona lasagna dæmi nema með einhverju grænmeti í sem ég smakkaði en var viðbjóður svo ég borðaði það ekki, en svo var bara epla kaka í eftirrétt sem ég borðaði *proud* !! hef aldrei getað borðað epla köku áður,þið vitið nú hvernig ég er með að blanda brauði með grænmeti og ávextum xD
En já svo fór ég, Ludo og Fede bara upp að horfa á How to loose a guy in 10 days og höfðum það bara kozy saman :) þær eru géðveikt nice og skemmtilegar :D mig langar bara svo til að geta spólað fram í tímann og vera orðin náin þeim og að þessi svona hálf vandræðalegu móment hætti :) en meina þetta kemur allt saman, þetta er nú bara 2 dagurinn minn eða eitthvað ;D haha
en jæja þá er ég hætt gott fólk
SAKNA ALLRA ÓGÉÐSLEGA MIKIÐ og bloggin verða kannski soldið mörg í einu núna fyrst þar sem að netið í minni tölvu virkar ekki og Raffaele er að reyna að láta laga það :)

Ciao;*

Fyrsta bloggið ;)Freyja Kjartansdóttir

Þetta mun vera síðan mín þar sem ég mun blogga um hvað er að gerast á meðan ég er sem skiptinemi í Ítalíu í 10 mánuði ;)

Ég fer til ítalíu 10.september og er að sturlast úr spenningi en er samt líka kvíðin. Ég verð í Suður-ítalíu í 80.000 manna bæ sem heitir Pozzuoli og ég verð hjá Ceccarino fjölskyldunni;

-Raffaele ('61) lýtalæknir, pabbi minn
-Giovonna ('61) barnalæknir, mamma mín
-Federica ('93) systir mín
-Ludovica ('94) systir mín

Ég get ekki beðið eftir að fara, hlakka til að búa í öðruvísi menningu, loftslagi og læra ítlaska siði.Með þessari dvöl vona ég að ég muni þroskast, verða minna matvönd, kunna að meta betur það góða sem ég á, dæma fólk minna og læra að elda ;) haha


útsýnið af svölunum af húsinu mínu ;)

Innskráningar kubbur

Klukkan

Aðrir skiptinemar